mánudagur, 6. ágúst 2007

Ertu kelling!!!??

Þá er ágústmánuður hafinn...eru virkilega 7 mánuðir síðan Elín Ósk kom í heiminn??!! Þetta er svo furðulegt með tímann, hvað hann getur liðið hratt, en samt eldist maður ekkert, þið hljótið að kannast við þessa tilfinningu:) En ég hef sannfærst um það, að það erum við sjálf sem ráðum því hvort við eldumst eða ekki. Við ráðum því hvort við verðum "kellingar" fyrir aldur fram & klæðum okkur í takt við það. Það þekkja allir einhverjar ungar stelpur sem eru að drepast úr, að mér finnst, leiðindum. Þó við séum orðin foreldrar & þurfum að haga okkur samkvæmt því, vera fyrirmyndir barnanna okkar o.s.frv., þá megum við ekki gleyma að djóka & leyfa okkur að vera við sjálf. Það geri ég a.m.k. & mun gera áfram. Þoli ekki ungar stelpur sem eru orðnar of fullorðnar (inní sér) til að djóka & fíflast. Það er einfaldlega leiðinlegur félagsskapur! Hef ekki hugmynd um afhverju ég fór að blaðra um þetta núna, ætlaði bara að skrifa um eitthvað annað, en svo kom þetta.... kannski það sé vegna þess a nú eru 7 dagar í að ég verð árinu eldri.....Ég SKAL ekki verða kelling!!!!
hehe.... over..

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æi þú ert svo yndisleg. ég veit alveg hvað þú ert að tala um með að verða kjelling..þó ég eigi ekki börn:) 'Eg ætla líka að vera svona nettbrjáluð og skemmtileg áfram..hehe. Vonandi var gaman í Nettó, alltaf gaman að gera eitthvað nýtt.
Þú ert flottust.
Kv. Linda

Nafnlaus sagði...

ég veit ekki, mér hefur alltaf fundist þú svoldil kelling
kv. Hlynur

Nafnlaus sagði...

Hae elskan min,
Ja, ekki breytast i kellingu takk fyrir. Tholi ekki heldur stelpur sem halda ad thad se kul ad vera kellingarlegar med maedusvip.Trui ekki sjalf havd timinn lidur hratt. Thu att nu lika bradum afmaeli gamla min. Langar ad tala vid thig. Reyni a morgunn, laugardag. Er best ad hringja i gemsann? Knus og kossar Ebbilius

Nafnlaus sagði...

Elsku Iris min,
Til hamingju med daginn. Get ekki hringt i thig i dag, er ad vinna en vona ad thu eigir rosa godan dag. Thad var aedislegt ad heyra i ther a laugardag. Verdum endilega ad gera thetta oftar. Knus og kossar, Eva

Nafnlaus sagði...

Hellú sveitapía
Lofa þér því að ég mun aldrei breytast í kellingu og halda þér í leiðinni svona líka ungri. Borgarbúi nr.1 á leið á Stuðmannaball og að þessu sinni ætlar eilífðarunglingurinn að mæta á svæðið ásamt æskugenginu sínu og að sjálfsögðu í búining. Þar sem búið er að taka plastpokana, hattana og regnkápurnar er komið að GÆRUNUM....svo ekki að grínast. Geri reyndar fastlega ráð fyrir því að líða útaf úr hita en það er alveg þess virði.
Knús úr borginni,
Borgarbúinn kveður að sinni.