miðvikudagur, 4. mars 2009

Hvannadalshnjúkur....eða ekki?!

Líkurnar á því að ég gangi á hnjúkinn minnka með hverjum deginum sem líður. Ég sem var orðin frekar spennt fyrir þessum merka áfanga, sem er frekar ótrúlegt þar sem ég er ekki mikið fyrir svona labb. Það er nefnilega alltaf þannig að þegar það er janúar og febrúar þá finnst manni alltaf svo langt þangað til að e-ð gerist og fer að plana hitt og þetta. En svo líður tíminn alltaf eins og raketta og gangan eftir tæpa 2 mánuði og líka skil á lokaverkefninu. Ef ég á að meika það upp þessa 2000 rúml. metra þá verð ég líka að taka góðar æfingar annað veifið upp um fjöll og firnindi. Staðreyndin er hins vegar sú að lokaverkefnið mun taka allar þær stundir sem eiga að heita "frí", þannig að ég ákvað að vera raunsæ og fresta þessu um óákveðinn tíma. Ég veit að það verður lítið mál að fá hann Óskar minn með mér einhvern tímann seinna. En ég viðurkenni það að ég mun verða frekar spæld þann 25. apríl þegar allur hópurinn fer upp......nema ég....:( Hlynur fer bara í staðin fyrir mig og tekur flottar myndir til að sýna mér...jájá

Ég sleppi samt ekki blakinu, sem mér finnst mjög skemmtilegt og góður félagsskapur. Þegar mæting er hvað best erum við í kringum 20 kellur, sem er nú helv... gott. Ég lét meira að segja plata mig austur á Neskaupsstað um helgina á e-ð blakmót....dísös kræst! En hei... þetta er í alvöru spurning um að vera með :):) Er í B liðinu svo það sé alveg á hreinu! Go Íris go Íris !!! Takk fyrir það :)

Annars er bara allt í gúddí fíling hérna á bæ fyrir utan smá veikindi hjá þeirri yngstu á bænum, en það er nú bara þannig þegar maður á börn. Hún er frekar mikil mömmustelpa og t.d. þegar Óskar kom heim eftir vinnu seinnipartinn þá var hún ekki á því að far að kubba með pabba sínum á meðan mamma hrærði í grautnum, alveg brjáluð. Síðan datt mér eitt í hug sem skiptir hana afar miklu máli þessa dagana, en það er að "stjórna". Ég sagði að hún mætti stjórna á meðan þau kubbuðu og þá bara "já"!! Þetta er s.s. the secret word þessa dagana...

Over and out!
Íris í keppnisskapi

4 ummæli:

Unknown sagði...

Þú verður að berjast fyrir því að komast í A liðið....sýna smá vilja hérna maður.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

hahaha-snilld-að stjórna,það var þá gullna orðið.
Gangi þér vel í öllu Íris mín.

Nafnlaus sagði...

Dugleg ertu kona og kraftur í þér. Þú tekur hnjúkinn bara með stæl á næsta ári. Ég er einmitt á bömmer að hafa ekki verið búin með hann en hlakka líka til að eiga hann eftir.
Lea Dís er alltaf í fötunum frá ykkur og er algjör dúlla í þeim. Takk, takk.
Við verðum á íslandi í 5 vikur í sumar 24.júní - 30. júlí. Það væri snilld að ná að hittast ef þú verður í rvk. Við förum í viku ferð á vestfirði þannig að því miður verðum við ekki i nágrenni við ykkur. Kannski næst.
Hafðu það gott sæta mín
Linda og co í Köben.

Nafnlaus sagði...

Hallo Iris min,
Takk fyrir kvedjurnar. Hvernig er thad, ertu haett ad blogga? Langar til ad koma heim i sumar og knusa ykkur og syna ykkur Miu litlu. Veit ekki hvenaer vid komum en thad verdur allavega a thessu ari.

Knus og kosar til allra thinna,

Eva